Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Mikilvægt fyrir bæjarfélag að eiga öfluga frumkvöðla

Já þetta eiga þeir skilið Múgífeðgarnir og allir þeir fjölmörgu sem stóðu að Rokkhátíðinni Aldrei fór ég suður. Frábært frumkvöðlastarf hérna á ferðinni og er þessi hátíð að festa sig rækilega í sessi hérna á Ísafirði um páskana.

Önnur sniðug hátíð, eða öllu heldur keppni, verður haldin hérna um verslunarmannahelgina og hvet ég alla til að kynna sér Mýrarboltann.

Frétt af bb.is


Núpur í Dýrafirði

Nokkrar hugmyndir eru að skjóta upp kollinum í sambandi við gamla skólann á Núpi. Húsnæðið er þar allt til sölu og gæti þetta nýst í ansi margt. Þarna er öll aðstaða til alls, skólastofur, íþróttaaðstaða og margt fleira.

Hérna eru 2 hugmyndir:

Karl V. Matthíasson - Vill að Núpur verði meðferðarheimili

Gunnar Pétur Garðarsson - Núpur

Hefur þú hugmyndir fyrir skólabyggingarnar að Núpi ?

Skrifaðu um það og sendu mér póst hvar ég finn greinina. 

vestfirdir@gusti.is


Keðjuverkun

Gott að það var engin hætta á ferð. Enda veður hér vestra með eindæmum gott þessa dagana. Þetta vísar á gott sumar.
mbl.is Tveir stangveiðibátar vélarvana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðalfundur Ferðamálasamtaka Vestfjarða 2007 á Tálknafirði

Aðalfundur Ferðamálasamtaka Vestfjarða 2007 verður haldinn á Tálknafirði 4. - 5. maí næstkomandi, en samtökin eru grasrótarfélag ferðaþjóna á Vestfjarðakjálkanum.

Gott tækifæri til að kynna sér ferðaþjónustuna fyrir vestan, og athuga hvort þarna sé tækifæri fyrir þig.

Frétt af vef Ferðamálasamtaka Vestfjarða 


Hnísur að leik í mynni Skutulsfjarðar

Það er margt hægt að sjá hérna á Vestfjörðum. Nú síðast voru hvalir við Hólmavik og svo voru þessar Hnísur að leika sér í Skutulsfirði. Fínar myndir með.

Frétt af bb.is 


Skrifað undir menningarsamninga

Framlag ríkisins til samningsins við Vestfirðinga munu vera um það bil 90 milljónir á þremur árum, en samningurinn verður annars birtur á vefsvæði ráðuneytanna á morgun.

Frétt af strandir.is


1. maí: Lágmarkslaun verði 200.000 krónur

Villi Valli 

1. maí var haldinn hátíðlegur í dag. Skellti mér í kröfugöngu á Ísafirði með fjölskyldunni og tók slatta af myndum. Vel var mætt og var svo haldinn fundur í Alþýðuhúsinu. Þar talaði Pétur Sigurðsson fráfarandi formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga með mikilli rausn. Hann lýkur störfum um næstu helgi eftir 40 ára störf í þágu félagsins. Held að það séu mér allir sammála að hér sé merkur maður á ferð sem á á allar þakkir skildar fyrir störf sín. Pétur fékk afhentan blómvönd úr höndum Kára Jóhannssonar að lokinni ræðu sinni.

Einnig hélt Ólína Þorvarðar ræðu í tilefni dagsins. 

Smellið hér til að sjá myndasyrpu.

Frétt af ruv.is 


mbl.is Baráttudagur verkamanna haldinn hátíðlegur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Vestfirðir
Vestfirðir

Hér má finna samansafn greina og frétta um fjórðunginn og lífsbaráttu hans. Einskonar tenglasafn. Ábendingar um greinar og tengla eru vel þegnar á vefpóstinn vestfirdir@gusti.is .

A.T.H! Smellið á tenglana til að sjá.

Ályktun "Lifi Vestfirðir" 

Skýrsla Vestfjarðanefndar

Skýrsla samgönguráðuneytis

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband