Leita í fréttum mbl.is

Vestfjarðanefndin á að skila tillögum til forsætisráðherra ekki seinna en á morgun!

Af vef forsætisráðuneytis:

 

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag tillögu forsætisráðherra um að skipa nefnd til að fjalla um leiðir til að styrkja atvinnulíf á Vestfjörðum. Nefndin er skipuð í framhaldi af viðræðum fulltrúa sveitarfélaga á Vestfjörðum við ríkisstjórnina að undanförnu. Auk fulltrúa forsætisráðuneytis eiga sæti í nefndinni fulltrúi frá iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti, bæjarstjórinn á Ísafirði og framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Vestfirðinga. Nefndinni er ætlað að skila tillögum sínum til forsætisráðherra eigi síðar en 11. apríl nk.

Reykjavík 13. mars 2007

Fundur var haldinn vestur á Ísafirði á svipuðum tíma og lesa má ályktun fundarins "Lifi Vestfirðir" hér.

Opinn borgarafundur, haldinn í Hömrum á Ísafirði sunnudaginn 11. mars 2007, skorar á fulltrúa Vestfirðinga á alþingi og í sveitarstjórnum, hvar í flokki sem þeir standa, að taka höndum saman, leggja flokkspólitísk ágreiningsefni til hliðar og sameinast um þau brýnu úrlausnarefni sem við blasa í atvinnu- og byggðamálum hér á Vestfjörðum.  Fundurinn krefst þess að stjórnvöld standi við marg- ítrekuð loforð og stefnumótun um uppbyggingu Ísafjarðar sem eins af þremur byggðakjörnum utan höfuðborgarsvæðisins. Ennfremur að þessu svæði verði settar sanngjarnar leikreglur með ákvörðunum um nauðsynlegar framkvæmdir í samgöngumálum, tilfærslu opinberra starfa og eðlilegt aðgengi að fjármagni.  Mikið vantar á að þetta landsvæði njóti jafnræðis á við aðra landshluta varðandi samgöngur, fjarskipti, flutningskostnað, menntunarkosti og almenn skilyrði í atvinnulífi.  Beinir fundurinn því til frambjóðenda stjórnmálaflokkanna í Norðvesturkjördæmi að mæta til kosningabaráttunnar nú í vor með haldbærar tillögur um framtíð byggðar á Vestfjörðum.   Við köllum eftir samstöðu þings og þjóðar gagnvart þeim vanda sem Vestfirðingar standa nú frammi fyrir. 

 

Spennandi verður að sjá þessar tillögur og vonandi má þar finna tillögur sem allir geta sætt sig við.

 

Ég ætla að leyfa mér að segja að Vestfirðir bíði spenntir!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Vestfirðir
Vestfirðir

Hér má finna samansafn greina og frétta um fjórðunginn og lífsbaráttu hans. Einskonar tenglasafn. Ábendingar um greinar og tengla eru vel þegnar á vefpóstinn vestfirdir@gusti.is .

A.T.H! Smellið á tenglana til að sjá.

Ályktun "Lifi Vestfirðir" 

Skýrsla Vestfjarðanefndar

Skýrsla samgönguráðuneytis

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband